Allir að kjósa mig
http://www.greatestholiday.radissonblu.com/saevar-steinarsson/887132/
1 athugasemd
Bestu kveðjur frá frá Cote´azur

Við erum hér í góðu yfirlæti að reka sumarhús, elda mat ofl. húsið er geggjað, risa höll, sundlaug og allt sem "þarf" á svona stað....
Fólkið er mjög næs, karlinn er Enskur Lávarður og var einusinni kapteinn í heiðurslífvarðasveit drottningar... þeas ekki alvöru lífverðir heldur er þetta svona "montklúbbur heldri manna" Myndir af gamla um allt hús með drottningunni og fleirum úr þeirri famelíu....
En fyrir mér er hann bara annar "Jaaaáááhhhh" kall ;)
Einnig stofnaði hann Formúlu1 lið nítjánhundruðsjötíu og eitthvað og smíðaði mótorhjól í sínu nafni og eru enn framleidd 2 mótorhjól á ári undir hans nafni.
Þetta hús var hótel fyrir nokkru síðan... þau bara keyptu allt húsið og nota það sem sumarhús...
Það eru ennþá uppl um húsið á netinu... hér er td síða á booking.com fyrir þá sem nenna að skoða myndir af kofanum.
http://www.booking.com/hotel/fr/villagrimaldi.en.html
Þarsem þau nota kofann einungis fyrir sig og sína fjölskyldu, þeas kotið er ekki leigt út, þá verðum við soldið mikið ein hérna í sumar, þau fara td héðan um næstu helgi og þá verðum við í 2-3 vikna fríi í húsinu, busla í lauginni og þessháttar erfiði.
Kosturinn er að við erum samt á launum, þau sjá hag í að hafa einhvern hér þannig að allt standi ekki autt svo vikum skiptir til að freista ekki innbrotsþjófa.
Þannig að við stefnum á að verða svaka brún og fín á frönsku ríveríunni í sumar.
Kanski maður hafi tíma og nenni til að skrifa meira þegar líður á sumarið.
Au revoir.
Ætli maður verði ekki að setja inn nokkrar fréttir, af nógu er að taka enda frekar langt síðan hér var skrifað síðast.
Í stuttu máli gerðist þetta...
- Við kíktum til íslands í 3ja vikna heimsókn.
- Við náðum ekki að hitta nógu marga eða kíkja á djammið vegna vinnu við íbúðina. (sjá næstu línu)
- Skiptum um leigjanda í íbúðinni á laugavegi, og vorum þar nánast allan tímann að mála og laga allskonar misbresti í íbúðinni
- Ég fékk hangikjöt að borða.
- Við fórum útí leifsstöð á þriðjudagsmorgun kl 05:30, ósofin. Og fórum í loftið kl 07:00
- Við misstum af fluginu frá london til Pisa því hel****S iceland express voru hálftíma of seinir.
- Við keyptum nýtt flug til Bologna á ítalíu síðar um daginn, nokkuð mörgum evrum fátækari...
- Fengum bílaleigubíl þar og lögðum af stað til chianti sem er tæplega 3 tíma keyrsla
- Náðum í kisu og búslóðina og keyrðum af stað til Frakklands.
- Keyrðum í nokkra tíma og fundum okkur hótel í genóva, þarsem Kisa fílaði sig í botn, algjör prinsessa.
- Keyrðum svo í dag, (miðvikudag) hingað upp til Meribel sem er í 1600 metra hæð og erum byrjuð að koma okkur fyrir í íbúðinni okkar.
Vorum mjög heppin með bílaleigubílinn, lentum á fiat chroma, sem er snilldar station bíll, 6 gíra og komst auðveldlega uppí 150km hraða á innan við 3000 snúningum...
Aðeins þægilegri bíll en litla fíat pandan sem við fórum á í þetta ferðalag síðast og komst réttsvo uppí hundrað...
En okkur líður mjög vel hérna, vatnið í krananum er að ég held betra en það íslenska, gott að þurfa ekki að bera vatnið inn í flöskum úr búðinni og Kisa fílar sig í botn hérna, kúrir bara í okkur og malar.
Jæja, segjum þetta gott í bili.
Bestu kveðjur úr 1600 metra hæð í Meribel, France.
Au revoir....
